Forsíða > Margmiðlunarspilarar > Að uppfæra Tvix margmiðlunarspilara

Að uppfæra Tvix margmiðlunarspilara

þriðjudagur, 14 september 2010 Skrá ummæli Go to comments

Frá því að ég byrjaði í Tölvulistanum þá tók ég eftir því að það vill vefjast fyrir fólki að uppfæra sjónvarpsflakkarana sína.

Þegar við seljum sjónvarpsflakkara bjóðum við ætíð uppá að setja harða diska í spilarana fyrir fólk en látum þó vera að bjóða uppá hugbúnaðaruppfærslu. Það væri kannski sniðugt að byrja á því núna en það er bæði tímafrekt og kannski finnst viðskiptavinum ekki mikilvægt að standa í þessu.

Hvað um það, þá er það í raun mjög einfalt mál að uppfæra spilara, svo lengi sem framleiðandi spilarans býður uppá það.
Dvico Tvix er mjög öflugur framleiðandi og að mínu mati einn sá besti á markaðnum. Ég hef svosem ekki mikinn samanburð en þó nokkurn.

Hér að neðan má sjá aðferðir til þess að uppfæra spilarann á tiltölulega auðveldan hátt.

Að kanna hvaða hugbúnaðarútgáfa er í spilaranum er gert svona:

  1. Tengdu TViX spilarann við sjónvarpið þitt og kveiktu svo á spilaranum.
  2. Ýttu á SETUP hnappinn á fjarstýringunni og uppsetningarvalmyndin (setup) kemur upp.
  3. Neðst á skjánum ætti að birtast “Version ##.#.##”  sem gefur til kynna hvaða hugbúnaðarútgáfa er á spilaranum.
  4. Farðu á heimasíðu TViX www.tvix.co.kr og sjáðu hvaða hugbúnaðarútgáfur eru nýjastar fyrir spilarann þinn.

Að hala niður nýrri hugbúnaðarútgáfu:

  1. Náðu í nýjustu útgáfuna á www.tvix.co.kr og halaðu því niður.
  2. Tengdu TViX spilarann þinn við tölvuna þína með USB kapli.*
  3. Stýrikerfið í tölvunni þinni mun skrá spilarann sem harðan disk.
  4. Afritaðu útgáfuna sem þú náðir í inn á rót spilarans eða á USB lykil.**
  5. Slökktu á spilaranum og tengdu hann við sjónvarp.
*Sumir TViX spilarar bjóða uppá tengingu við heimanet. Með FTP forriti má komast færa skrár með auðveldum hætti frá tölvu yfir á spilara án mikillar fyrirhafnar. Nánar um það síðar.
**  Flestir TViX spilarar eru með USB tengi svo hægt sé að tengja utanályggjandi harðan disk eða USB lykil við þá.

Það að uppfæra Tvix 6600N spilara er gert einhvernvegin svona:

  1. Þegar búið er að sækja nýja uppfærslu á heimasíðu TViX www.tvix.co.kr er best að vista hana inn á rót spilarans eða á USB lykil.
  2. Tengdu spilarann við sjónvarpið og kveiktu á honum.
  3. Í valmynd spilarans má sjá uppfærsluna, oftast kemur hún neðst í lista. Mynd 1Hugbúnaðaruppfærsla á rót
  4. Spilarinn spyr hvort þú viljir uppfæra. Veldu uppfærsluna og ýttu á OK hnappinn á fjarstýringunni.
  5. Samþykktu uppfærsluna með því að velja OK á skjánum. Mynd 2 Mynd 2
  6. Stöðugluggi kemur upp og sýnir hversu mikið er eftir búið af uppsetningunni. Mynd 3
  7. Að uppsetningu lokinni endurræsir spilarinn sig og er þá tilbúinn til notkunar.

Athugið að margir spilarar sem eru með nettengingu bjóða uppá sjálfvirka uppfærslu.
TViX 6600 línan bíður uppá þann kost og er hann mun einfaldari en sú leið sem sýnd hefur verið hér.

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi þetta hvet ég þá sem þær hafa að vera í sambandi við mig annað hvort með tölvupósti eða í athugasemdum hér að neðan.

  1. Eygló Svava Kristjánsdóttir
    fimmtudagur, 10 mars 2011 klukkan 20:34 | #1

    Sæll
    Ég er í vandræðum með að spila mkv fila og finn ekki converter til að breyta þessu í avi, er möguleiki að ég þurfi að uppfæra bara flakkarann minn, hann heitir dvico tvix- m4000s j, getur þú bent mér á hvar ég get uppfært hann eða eitthvað annað til að hann geti spilað mkv myndir..

    Takk kærlega

    • HaraldurHelgi
      laugardagur, 12 mars 2011 klukkan 13:11 | #2

      Sæl vertu!
      Einfaldasta leiðin til þess að converta .mkv í .avi er sennilega að nota VLC spilarann sem fæst á http://www.videolan.org/vlc/
      Svo eru til önnur forrit á borð við Handbrake og Rodeo Convertert.
      Ég hef ennþá ekki fundið út spekkana á flakkaranum þínum þannig að ég get ekki alveg svarað því hvort það sé nóg að uppfæra hann.

      Kv. Haraldur Helgi (Halli)

  1. No trackbacks yet.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.