Forsíða > Blogg > Hressleikinn allsráðandi!

Hressleikinn allsráðandi!

mánudagur, 6 september 2010 Skrá ummæli Go to comments

Jahérna, sumarið hvarf framhjá mér einn, tveir og þrír…

Ég eyddi reyndar talsverðum tíma í útlandinu en þó ekki öllu sumrinu.
Þann 19. apríl fór ég siglandi frá Akureyri til Helsinki og þaðan til Vyborgar í Rússlandi. Samtals var ég úti í 80 daga og kom heim þann 1. júlí, en upp úr því var skipinu sem ég er á lagt í Kotka í Finnlandi þar til ný verkefni fást.

Sumarfríið mitt var þá umþað bil 30 dagar og strax í byrjun ágúst, þann 3. ágúst byrjaði ég í afleysingu hjá Tölvulistanum á Akureyri. Nóg að gera þar enda skólarnir að byrja og margir að fá sér fartölvur og annað slíkt áður en skólinn byrjaði.
Verslun Tölvulistans flutti um miðjan ágúst í nýtt og betra húsnæði. Þar er mun meira vöruúrval og meira pláss. Það sem var kannski að hrjá mann mest í gamla húsnæðinu var að maður þurfti að skíta fyrir framan viðskiptavinina en klósettaðstaða starfsmanna var í sama rými og elhúsið og skrifstofa verslunarstjóra, í 2 fermetra skáp við hliðina á afgreiðslu borðinu.

Ég ákvað að verða mér útum sjónvaprsflakkara í sumar og úr því að ég er að vinna í tölvulistanum þá ákvað ég að grípa tækifærið og verslaði mér  Tvix 6600N og er þokkalega ánægður með hann. Margir möguleikar eru með þennan flakkara sem og flest alla þessa nýju flakkara frá Tvix en ég ætla mér að koma með póst hér inn fljótlega varðandi aukahluti og hugbúnað tengdan sjónavarpsflökkurunum sem Tölvulistinn er að bjóða uppá í dag.

Stay tuned!

  1. Engin ummæli enn.
  1. No trackbacks yet.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.